
laugardagur, september 27, 2008
ein eldsnögg og ómöguleg

Posted by
Alma Joensen
at
11:20 AM
43
comments
mánudagur, september 08, 2008
Evróputúrinn hafinn - Köben, Brussel, Sofia
Fyrst ég er fjarri fjölskyldu og vinum, ætla ég að byrja að blogga aftur, sem mun vonandi kæta þessar þrjár til fimm manneskjur sem nenna að lesa bloggið mitt.

Posted by
Alma Joensen
at
1:04 PM
6
comments
þriðjudagur, maí 13, 2008
hipp hipp

Um helgina var ég í Slóvakíu, og var kosin í framkvæmdastjórn European Students' Union... sem þýðir að ég er nú fulltrúi 11 milljóna stúdenta í Evrópu, amazing.
Posted by
Alma Joensen
at
7:16 AM
5
comments
sunnudagur, maí 04, 2008
Sló sló slóvakía!

Posted by
Alma Joensen
at
6:18 AM
3
comments
fimmtudagur, maí 01, 2008
Chessboxing
Þetta er það fáránlegasta sem ég hef séð!! Þetta er íþrótt sem heitir chessboxing, og gengur út á það að keppendurnir byrja á því að boxa og tefla svo eina skák strax á eftir...
Posted by
Alma Joensen
at
5:08 PM
2
comments
mánudagur, apríl 28, 2008
The hills are alive....



Posted by
Alma Joensen
at
7:00 AM
1 comments
miðvikudagur, apríl 23, 2008
GLEÐILEGT SUMAR
Posted by
Alma Joensen
at
10:01 PM
3
comments
þriðjudagur, apríl 22, 2008
Slóvenía
Er á fundi í Slóveníu. Á bjútífúl stað sem heitir Lake Bled.....

Posted by
Alma Joensen
at
3:10 AM
1 comments
fimmtudagur, apríl 17, 2008
Lærum af mistökum annarra
Síðustu daga hefur umræðan um upptöku skólagjalda í opinberum háskólum verið áberandi, í fjölmiðlum og á bloggsíðum samfélagsspekúlanta. Á forsíðu Fréttablaðsins, 13.apríl síðastliðinn, var vitnað í Sigurð Kára Kristjánsson, formann Menntamálanefndar Alþingis, sem sagði að upptaka skólagjalda við opinbera háskóla væri aðeins tímaspursmál. Er upptaka skólagjalda það óumflýjanleg að hún sé talin tímaspursmál? Það er rétt að samkeppnisstaða háskólanna er skökk og að opinberir háskólar þurfa aukið fjármagn til að geta setið við sama borð, en af hverju í ósköpunum liggur það beinast við að stúdentar axli ábyrgð á fjárhagsvanda opinberra háskóla? Ætti það ekki frekar að vera ríkið?
Það býr vissulega eitthvað annað að baki. Skólagjaldasinnar hafa þulið upp rök fyrir því hvernig upptaka skólagjalda muni umturna háskólasamfélaginu á þann veg að eftir nokkur ár munu hér vera miklu betri háskólar, sem bjóða upp á miklu betra nám og útskrifa miklu klárari nemendur. Samkvæmt þeim eiga skólagjöld því ekki aðeins að leysa fjárhagsvandann heldur einnig að bæta háskólasamfélagið til muna. Þeir segja að upptaka skólagjalda komi til með að auka afköst stúdenta í námi, séu aukin hvatning við stúdenta, auka skilvirkni háskóla og gæði náms. Þeir sem eru á móti upptöku skólagjalda hafa aftur á móti bent á það að þau skerði jafnrétti til náms og aðgang að menntun, stýri námsvali einstaklinga, og dragi úr gæðum náms.
Hver hefur rétt fyrir sér?
Á síðustu árum hafa skólagjöld verið tekin upp víða í Evrópu og hefur upptaka þeirra alls staðar verið reist á sömu rökum og heyrast hátt í íslensku þjóðfélagi í dag. Undir lok síðasta árs var gerð könnun meðal landsamtaka stúdenta allra ríkja Evrópu þar sem viðhorf til skólagjalda og áhrifa þeirra var kannað. Þar kom í ljós að 92% stúdentahreyfinga telja upptöku skólagjalda skerða aðgang að menntun, 87% telja þau hafa slæm áhrif á félagslega stöðu stúdenta, og 74% telja þau hafa áhrif á námsval einstaklinga. Í þeim löndum sem tekið hafa upp skólagjöld, fullyrða stúdentahreyfingar að skólagjöld séu aðeins enn einn steinn í götu þeirra sem mæta misrétti í háskólakerfinu eða búa við slæmar félags- og efnahagslegar aðstæður. Þeir örfáu úr þessum hóp, sem þrátt fyrir slagandi áhrif skólagjalda skrá sig í háskóla, byggja námsval sitt nú nær undantekningarlaust á arðbærni námsins en ekki á áhuga eða hæfileikum.
Með þessu dæmi getum við hafnað þeim rökum skólagjaldasinna að skólagjöld séu aukin hvatning fyrir stúdenta. Skólagjöld hvorki bæta frammistöðu stúdenta, né auka skilvirkni háskólakerfisins, heldur setja þau aukna pressu á stúdenta að klára námið sitt á eins stuttum tíma og mögulegt er. Fjárhagslegar hömlur þrengja að stúdentum og þvinga þá ekki aðeins til að vinna með námi heldur einnig að klára það á „réttum“ tíma. Þetta verður til þess að stúdentar ná ekki þeim árangri sem þeir vilja ná og að háskólarnir útskrifa ekki nemendur með jafnháar einkunnir og áður, nema þeir auðvitað dragi úr hæfniskröfunum og þar með minnki gæði náms.
Það er pís of keik að taka lán!
Það gera sér allir grein fyrir því að skólagjöld skerða jafnrétti til náms, enda hafa ekki allir efni á því að greiða skólagjöld. Skólagjaldasinnar telja lausnina við þessum vanda vera einfalda: að lána fyrir skólagjöldum. Lán þarf samt að borga til baka, og lán krefjast þess að þú sért með ábyrgðarmann. Stúdentahreyfingar í Evrópu hafa allar fullyrt það að þau lán og styrkir sem standa stúdentum til boða dugi ekki bæði fyrir skólagjöldum og framfærslukostnaði. Auk þess hafa skólagjöld dregið verulega úr því að fólk sæki sér menntun síðar á lífsleiðinni, en það forðast að bæta mánaðarlegum afborgunum skólagjaldalána við afborganir húsnæðislána, bílakaupalána og tölvukaupalána. Það er því nokkuð ljóst að lán fyrir skólagjöldum munu aldrei koma í veg fyrir það að jafnrétti til náms skerðist.
Við erum ekki ein í heiminum
Það er ekki eins og við séum eina þjóðin í heiminum sem hefur velt fyrir sér upptöku skólagjalda. Stöldrum aðeins við áður en við dembum okkur út í óvissuna, sem er kannski ekkert svo óviss eftir allt saman? Nei, það eina sem við þurfum að gera er að læra af mistökum annarra.
Heimild:
European Students’ Union. 2008: Lisbon With Students Eyes.
Þessi grein birtist á vefritid.is 17.apríl 2008.
Posted by
Alma Joensen
at
4:32 PM
2
comments
sunnudagur, apríl 13, 2008
krot krot
Í gærmorgun vaknaði ég eftir mikið djamm og skrall og rak augun í hendurnar á mér sem voru, mér til mikillar furðu, útkrotaðar. Inni í öðrum lófanum stóð "B.A. í sleik" skrifað með svörtum og rauðum tússpenna, og í hinum stóð "ég er ýkt góð í sleik 1" (1 var sem sagt vísun í heimild), auk þess sem búið var að teikna vöðvatröll á handlegginn á mér. Þegar ég vaknaði var þetta búið að smitast yfir á andlitið á mér, sængina og fínu hvítu tölvuna mína, sem ég hafði kíkt aðeins í þegar ég kom heim. En.. ég náði þessu ekki af höndunum á mér, og ber ennþá leifar þessa gríns.
Posted by
Alma Joensen
at
7:10 AM
1 comments
mánudagur, mars 31, 2008
mánudagur, mars 10, 2008
Hattifattar
Frá og með deginum í dag er ég ekki lengur framkvæmdastjóri.
Ein óbreytt Alma.
Þarf þá líklegast að breyta þessu í símaskránni í eitthvað svipað og þetta.
(Kannski breyti ég þessu í: Alma Joensen - Hattifatti)
Nú get ég varla sætt mig við neitt annað en að vera framkvæmdastjóri, það gengur ekki að ég lækki í tign með árunum. Þannig að ef þið vitið um einhverja lausa framkvæmdastjórastöðu þá endilega leggið inn gott orð. Hver vill ekki fá kvenkyns, vinstrisinnaðan talíbanafemínista í framkvæmdastjórastól í einkarekna fyrirtækinu sínu? Maður spyr sig.
Ef það bregst, þá bý ég enn yfir mínum stórfenglegu ms paint hæfileikum.
Tékkið á þessu tryllta partíi sem ég var í á föstudaginn. Það ætlaði allt um koll að keyra þegar vinir okkar úr Vatnsmýrinni mættu í fylkingu!

bless í bili
Posted by
Alma Joensen
at
3:03 PM
4
comments
mánudagur, janúar 21, 2008
Rödd stúdenta
Kosningar til Stúdentaráðs vei vei. Röskva kynnti framboðslistann sinn á föstudaginn. Hér er listaplagatið
Við gætum tekið þetta á FABINU einu saman..........

Posted by
Alma Joensen
at
4:43 PM
3
comments
sunnudagur, janúar 20, 2008
obbosí
Kæru stúdentar, örvæntið.
Þessi situr í Stúdentaráði.
Engin skólagjöld? Hærri námslán? Jafnrétti til náms?
Posted by
Alma Joensen
at
4:40 PM
2
comments
þriðjudagur, janúar 01, 2008
Gleðilegt ár
Gleðilegt ár kæru vinir, og takk fyrir allt gamalt og gott!
2007 var fantagott ár! Mér finnst það hafa liðið óvenju hratt, enda hefur margt skemmtilegt gerst.
-Í byrjun árs endurheimti Röskva meirihluta í Stúdentaráði, en það eru klárlega gleðifréttir ársins.
-Í mars gaf ég skít í námið og tók við stöðu Framkvæmdastjóra Stúdentaráðs.
-Ég fór til Tallin í apríl og upplifði alvöru óeirðir. Táragas og allur pakkinn. Þeirri ferð mun ég seint gleyma. Samt svolítið svekkt yfir að hafa ekki fengið að fara inn í gamla bæinn sem er víst fabjúlos. Geri það næst.
-Í maí bauð ég mig fram í nefnd innan European Students' Union og hlaut kosningu. Húrra!
-Fór til London á aðalfund ESU og heimsótti Dísu og Antoine í leiðinni.
-Fór til Litháen í júlí, og aftur í nóvember. fyrri ferðin var töluvert betri enda tími þá til að sjá eitthvað annað en hótel og ráðstefnusali. Seinni ferðin var vægast sagt geðveiki. Er enn að jafna mig.
-Ég og LÍN-krúttið tókum yfir Grundarstíginn í sumar, á meðan Halla var í Ástralíu í sleik. Þar náði vinátta okkar nýjum hæðum, ég kynntist tryllingi krúttsins og hamingju heimsins.
-Fór til Berlínar fyrir hönd ESU á ráðstefnu heimssamtaka kennara, sem var nokkuð magnað. Þar kynntist ég toppunum í háskólageira OECD og Unesco, og hitti forseta Þýskalands. Í Berlín mun ég búa.
-Í ágúst var mér boðið að koma til Færeyja fyrir hönd Stúdentaráðs, að taka þátt í pallborðsumræðu á Færeyja Gay Pride. Þá sá ég Færeyjar og Færeyinga í nýju ljósi.
-Fór á ráðstefnu á Kýpur fyrir hönd ESU, þar sem ég fékk að baða mig í sólinni í september, hélt ræðu fyrir ríkisstjórn Kýpur, og fór í viðtal við sjónvarpið sem talsetti mig á grísku. Það var fyndið.
-Fór til Lissabon á European Students' Convention. Þar synti ég í Atlantshafinu í lok október og baðaði mig í sólinni í steikjandi hita. Þar er hnatthlýnun í hámarki. Var líka stungin svo illa af moskítóflugu að handleggurinn þrefaldaðist. Það var ekki gaman.
-Fór til Málaga í nóvember fyrir hönd ESU á annan fund með heimssamtökum kennara. Síminn minn er enn í Málaga, litla greyið.
-Síðasta ferðin mín 2007 var í desember þegar ég fór til Bergen sem er fab borg. Þar vil ég búa, þrátt fyrir alla rigninguna. Hitti samt hvorki Erlend Oye né Annie. Hitti þau næst.
BEST of 2007:
-Skrifstofan: Lín-krúttið, Foringinn og Alli bé ritstjóri. Árshátíðin, Hausthátíðin og jólaglöggið.
-Frábær frammistaða mín og annarra meðlima single&fab
-Fullt fullt fullt af nýjum alþjóðlegum vinum
-Tónleikar, partí og gott grín með gömlu góðu vinunum
-Hrönn, Sissa og Sigrún sem stórbættu fimm af ferðum ársins
Árið 2008 verður vonandi enn betra. Þá mun ég eignast nýja sambýliskonu, hana Sissu, en við ætlum að leggja drögin að heimsyfirráðum. Ég fer til Brussel eftir rúma viku, Slóveníu í mars, Úkraínu í apríl og Slóvakíu í maí. Já og svo ætla ég að hætta að gefa skít í námið....
Posted by
Alma Joensen
at
9:40 AM
3
comments
miðvikudagur, desember 19, 2007
jólagjafir?
Ég mæli sérstaklega með þessum jólagjöfum fyrir vini og vandamenn, og jafnvel í skóinn:
- Ævisaga Óttars Martins Norðfjörð eftir Bryndísi Björgvinsdóttur
- Ljóðabókin Blótgælur eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur
- Sprengjuhöllin, Tímarnir Okkar
- Hjaltalín, Sleepdrunk Seasons
Svo mæli ég með því að fólk hlusti á þetta jólalag
Hó hó hó
Posted by
Alma Joensen
at
2:14 PM
2
comments
mánudagur, desember 03, 2007
Litháen
53.aðalfundur European Students' Union:
- eftir þennan fund er ESU 49 stúdentahreyfingar frá 38 löndum (13 milljónir stúdenta) eftir að Ísrael og Úkraína fengu aðild. Vei.
- Námskeið um jafnrétti kynjanna í tvo daga, aðalfundur og kosningar í þrjá daga
- hélt ræðu og fyrirlestur um strategíuna mína og stýrði workshoppi um Uppeldi og kyn
- Gender Mainstreaming Strategían mín sem ég er búin að vera að skrifa síðan í maí var samþykkt með meirihluta atkvæða!!!!
- lobbía lobbía lobbía lobbía endalaust dag og nótt
- 25 klst umræða og kosningar um lagabreytingar þökk sé búrókrasíunasistunum frá mið-evrópu
- 5 klst umræða og kosningar um hvort það eigi að reka duglega manneskju úr nefndinni sinni. Sem var svo rekin. Einelti? já.
- Aðalfundurinn 17 klst fyrstu tvo dagana, 21 klst síðasta daginn
- 20 klst svefn á 7 dögum og töluvert mikið stress sem oft var leyst með alls kyns tegundum af austur evrópskum vodka
- enginn tími fyrir sleik nema í lyftum, leigubílum og fatahengjum
- fyrir þá sem ekki borða kjöt: fullur diskur af brokkolíi einn daginn, heit plastkend ostakaka annan daginn, grilluð gúrka og hrísgrjón þriðja daginn og pönnukökur fylltar með eplum og kanil (í aðalrétt ekki eftirrétt) fjórða daginn.
- samt alveg fáránlega gaman.
Posted by
Alma Joensen
at
7:53 AM
2
comments
mánudagur, nóvember 26, 2007
Litúanía
Ekki eins og ykkur sé sama, en ég er í Litháen. Aftur.
Á leiðinni frá flugvellinum sá ég margar stórar kommúnískar blokkir sem voru allar nákvæmlega eins (ábyggilega rosa hagkvæmar í byggingu og fjöldaframleiðslu). Svo voru nokkrir skýjaklúfar við hliðina á merktir hinum og þessum stórfyrirtækjum. Á einni byggingunni var RISAstórt skilti sem á stóð ALMA INTELLIGENCE! Fíla það. Litháen er með þetta á hreinu.
Posted by
Alma Joensen
at
7:27 AM
5
comments
föstudagur, nóvember 23, 2007
ráðfrú?
Mér finnst að konur ættu áfram að vera ráðherrar, flugmenn og kennarar. Svo framarlega sem menn eru flugfreyjur, fóstrur og hjúkrunarkonur.
Posted by
Alma Joensen
at
11:53 AM
0
comments
miðvikudagur, nóvember 21, 2007
tek þetta til baka
Ókei. Hróður Hlíðanna er í hættu. Sjá hér.
Posted by
Alma Joensen
at
7:45 AM
1 comments
þriðjudagur, nóvember 20, 2007
allt að gerast
Hlíðarnar eru í sókn. Valur Íslandsmeistari í fótbolta karla og kvenna, og Hlíðaskóli sigurvegari Skrekks.
Atrið Hlíðaskóla var femínískt, enda femínisminn líka í sókn.
Allt að gerast.
Posted by
Alma Joensen
at
1:12 PM
0
comments
mánudagur, nóvember 12, 2007
föstudagur, nóvember 09, 2007
oj
Súperman.is var að biðja mig um að vera vinur sinn á myspace?!?! Ég sagði DENY.
Ég sem hélt að þessi viðbjóður hefði brunnið með Pravda..
Posted by
Alma Joensen
at
7:53 AM
1 comments
fimmtudagur, nóvember 08, 2007
miðvikudagur, nóvember 07, 2007
Jólin komin í annað sæti - Hausthátíð Skrifstofu SHÍ
"Haustið er nú uppáhaldstími ársins, jólin komin í annað sæti"
-Guðrún Ösp, Faxdeild
"Ég var búinn að gleyma því hvað er gaman í sleik!"
-Raggi Siggi, Rekstrardeild
"Frábærlega vel heppnuð Hausthátíð!"
- Alma, Framkvæmdadeild
"þessi stórglæsilega hátíð á svo sannarlega erindi á forsíðu stúdentablaðsins"
- Atli, Blaðadeild
"Faaaaaaaaaaaaaaaaab hausthátíð!"
- Bjögga Magg, Lánasjóðsdeild
"Ég fagna þessari hausthátíð!"
- Dagný, Forystudeild
Dagskrá Hausthátíðar Skrifstofu Stúdentaráðs 2007
20.00 Mæting á Domo Þingholtsstræti 5 þar sem boðið verður upp á fordrykk. En ekki fara of geist í fordrykkinn því kvöldið er rétt að byrja. Hver vill enda eins og Solla í Símadeild í fyrra sem var farin heim fyrir níu..
20.15 Dagný Ósk Aradóttir, formaður Stúdentaráðs, ávarpar gesti og býður þá velkomna á Hausthátið Skrifstofu Stúdentaráðs.
20.30 Boðið verður upp á fyrsta flokks kvöldverð með öllu tilheyrandi.
21.00 Alma Joensen, framkvæmdastjóri Stúdentaráðs, kynnir fyrsta samkvæmisleik kvöldsins, hinn sprenghlægilega hlutverkaleik. Hver man ekki eftir stórfenglegri frammistöðu Sindra Jóns í Strætókortadeild í fyrra þegar hann þóttist vera burkni allt kvöldið án þess að nokkur sæi í gegnum hann..
21.30 Björg Magnúsdóttir, Lánasjóðsfulltrúi Stúdentaráðs, ávarpar gesti og dregur í hinu æsispennandi happdrætti Hausthátíðarinnar. Hver man ekki eftir hrærivélinni sem Óli Magg í Tölvudeild fór með heim í fyrra. Ath. Happdrættisnúmerin eru á aðgöngumiðanum.
22.30 Starfsmenn yfirgefa Domo, saddir og sælir, og halda til veislu á Njálsgötunni þar sem Paparnir munu leika fyrir dansi og hin mergjaða skrifstofuhljómsveit SHÍ (Stuð Handa Íslendingum) mun kannski láta sjá sig. Hver man ekki eftir því þegar Elsa Smith í Alþjóðadeild tók Orminn í fyrra..
23.00 Atli Bollason, Ritstjóri Stúdentablaðsins, býður gesti velkomna til sinna heimahúsa og heldur stórskemmtilegan fyrirlestur sem ber yfirskriftina „Séns á Sleik? Hver? Hvar? Hvernig?“. Atli hefur ferðast vítt og breitt um landið og flutt fyrirlesturinn við mikinn fögnuð áhorfenda. Heyrst hefur að þessi fyrirlestur hafi komið Fjölni í sleik við Mel B á sínum tíma, þannig að þið sem eruð einhleyp..haldið ykkur fast.
23.30 Starfsmenn skrifstofunnar dansa, drekka og leita uppi sleika langt fram á Rauða nótt.
Í vinnunni á föstudaginn, fengu starfsmenn afhenda dagskrá og aðgöngumiða (sem einnig voru happdrættismiðar) við hátíðlega athöfn á skrifstofunni. Spennan var í sögulegu hámarki eins og sjá má á þessum myndum.
Björg Magnúsdóttir og Atli Bollason á Domo, í þann mund sem Björg var að fara að draga í happdrættinu. Þess má geta að sigurvegarinn var hún sjálf.
Dagný Ósk í Forystudeild, nýkomin á Njálsgötuna og bíður spennt eftir Pöpunum...
Atli Bollason hjá Blaðadeild glottir, því hann þykist vita hversu stórfenglegt partíkvöld hann á í vændum.
Alma Joensen, framkvæmdadeild, var sár yfir bingóúrslitunum langt fram eftir kvöldi. En kættist þó á endanum, öllum til mikillar hamingju.
Björg alsæl með bingóúrslitin.
Þessi fer í jólakortin í ár. Ekki spurning.
Fréttablaðið var á staðnum, og vinnur nú hörðum höndum að tímamótafrétt um Hausthátíðina sem prýða mun heila opnu í laugardagsblaðinu. (Vá hvað Steindór er tanaður!)
Atli flutti vægast sagt frábæran fyrirlestur um sleik og hvernig maður á að næla sér í þá. Hérna sýnir hann viðstöddum hvað ekki á að gera við sleik-targetið. Raggi Siggi hjálpaði Atla með leikrænu tilþrifin og Guðrún Ösp á Faxdeild fylgdist spennt með. Bæði hún og Raggi Siggi lærðu mikið af þessum fyrirlestri.
Loks var stiginn villtur dans og dansað út í rauða nóttina....
Posted by
Alma Joensen
at
7:22 AM
1 comments
föstudagur, nóvember 02, 2007
Hausthátíð Skrifstofu Stúdentaráðs 2007
Í kvöld verður haldin hin árlega Hausthátíð Skrifstofu SHÍ. Starfsmenn skrifstofunnar iða í skinninu af tilhlökkun. Hausthátíðarnefnd (þriggja manna nefnd kosin af starfsmönnum skrifstofunnar) hefur unnið hörðum höndum að skipulagningu hátíðarinnar. Mun hún víst verða hin glæsilegasta. Mæting hefur aldrei verið eins góð og nú, en 133% þeirra sem mættu á árshátíðina, hafa skráð sig til leiks. Fjölmargir starfsmenn hafa fullyrt það að hafa aldrei í lífinu skemmt sér eins vel og á árshátíðinni, nema kannski á busaballinu í menntó.
Frá Árshátíð SHÍ 2007. Hér er formaðurinn að stúta einni flösku af Absolut á meðan hinir starfsmennirnir túlka hugarástand hennar:
Í haust hóf nýr starfsmaður störf á skrifstofunni. Hann er í blaðabransanum. Hann heitir Atli og er 15 ára gamall. Áhugamál hans eru sætar stelpur, ræðumennska, dr.Pepper, sætar stelpur, Oreo kex, brjóst og frír bjór (þó honum þyki nú best að drekka vodka í koolaid og sprite).
Posted by
Alma Joensen
at
4:25 AM
3
comments
mánudagur, október 29, 2007
80's
Í Lissabon var verið að halda upp á 25 ára afmæli ESU. Að því tilefni var haldið partí þar sem þemað var "party like it's 1982".
Ég, Hrönn og Sissa spáðum nú ekkert mikið í þessu en hentum þó kjólum í töskuna. Svo fyrir ballið hentum við okkur í föt, týndum eitthvað saman, máluðum okkur og túberuðum hárið. Ballið átti að byrja svo seint og fyrst við vorum tilbúnar ákváðum við að skreppa niður í lobby að fá okkur drykk. Við komum út úr lyftunni, litum yfir ganginn og tókum eftir því að ENGINN annar var í búningi. Við vorum ekki lengi að stökkva inn í stigaganginn og fela okkur þar. Þetta er svo típískt. Þeir sem svo sögðust vera í búningi voru kannski með tagl í hárinu, bleikt hálsmen eða eitthvað álíka "flippað". Við létum okkur þó hafa þetta, gengum að barnum og fengum okkur nokkuð sterka drykki. Við litum þó út eins og þrjár vændiskonur á barnum. Þetta evrópska fólk er svo hrætt við smá flipp að það er ótrúlegt.
(það sést illa á myndinni en það var playboy kanína á glerinu..)
Posted by
Alma Joensen
at
3:39 PM
5
comments
sunnudagur, október 28, 2007
Nú er kominn vetrartími!
Ég er búin að bíða með óþreyju eftir vetrartímanum í Evrópu. Tímabreytingarnar sem ég upplifi þegar ég ferðast fara með mig og það tekur mig alltaf of langan tíma að venjast þeim. Til dæmis alltaf þegar ég fer út á fundi þá þarf ég að vakna kl.6 eða 7 á íslenskum tíma, sem er fáránlegt. Svo tekst mér loksins að aðlagast en það fer allt í klúður aftur þegar ég kem heim. Þá þarf ég að venjast íslenskum tíma og um leið og mér tekst það, þá er ég farin út aftur.
Í nótt breyttist tíminn í Evrópu þannig að nú er einungis 1 klst munur á íslenskum tíma og central european time. Jess. Nú verður þetta vonandi minna vesen.
Það besta við þetta er það að ég er að fara á msn fund með gender equality committee kl.19.00 CET og þarf að undirbúa mig mikið fyrir fundinn. Áðan áttaði ég mig á því að það væri búið að breyta tímanum þannig að ég græddi heila klukkustund í undirbúning!! (Sem ég er að nýta í það að leika mér á facebook og blogga..)
Þegar ég bjó í Danmörku 2004 þá vorum við Karól, sambýliskona mín, alltaf með vöffluboð kl.16 á sunnudögum. Þá kom alltaf fjöldinn allur af fólki, sumir komu hvern sunnudag, aðrir komu af og til. Flestir komu allt of seint, nema Óskar sem mætti alltaf á slaginu 16. Einn sunnudag vorum við að leggja lokahönd á vöfflubaksturinn, búnar að setja kaffivélina á play og tilbúnar að opna fyrir fyrsta gestinum. En Óskar var hvergi sjáanlegur. Við fórum að óttast um hann. Á slaginu 17.00 mætir Óskar. Þá var búið að bæta einni klukkustund við þennan dag. Þetta fór alveg með Karól sem skyldi ekkert í þessu og hvernig fólk gæti leyft sér að bara bæta við klukkustund!! Þetta angraði hana allan daginn (og næstu daga) en það sem hún hafði mestar áhyggjur af var hvað yrði gert við sjónvarpsdagskránna. Hvort þau myndu bara bæta við tveimur Will & Grace?!?
Posted by
Alma Joensen
at
7:35 AM
0
comments
laugardagur, október 27, 2007
ég vil líka vera súperkona
Þessi súperkona hélt áfram að vera súperfab þrátt fyrir óeirðir og táragas í Tallin í vor.
Ég, Aili og Hrönn að taka hana til fyrirmyndar.
Posted by
Alma Joensen
at
3:16 PM
0
comments





